Starfsmannamyndir

Prófílmyndir og hópmyndir fyrir fjölbreytta atvinnustarfsemi

Litlar myndir eru ekki síður mikilvægar…

SVG file icon

Mannauðsstjórar og starfsmannastjórar

Prófílmyndir fyrir heimasíður, nafnspjöld, vinnustaðaskírteini, aðgangspassa og fleira.

Við veljum útlit sem hentar ykkar viðskiptaumhverfi

SVG file icon
 

Hópmyndir

Notaðu tækifærið þegar fólkið ykkar kemur saman að fá nokkrar hópmyndir.

Einnig hægt að skapa samsetta hópmynd úr einstaklingsmyndum!

Smelltu á mynd eða ör til að sjá sýnishorn

 
SVG file icon

Myndað hjá okkur eða hjá ykkur?

Stakir starfsmenn 1+

⇢ Myndað hjá okkur í Superstudio:

A: Fyrir einstaklinga og minni hópa er einfaldast að koma til okkar í Superstudio.

Grunnverð per einstakling í stúdíó:

  • Kr: 9.000 á hvítum eða gráum bakgrunni.

  • Kr. 12.000 fyrir meira “skapandi” útlit.

Í framhaldi er svo hægt að taka á móti nýjum- og stökum starfsmönnum í stúdíó hjá okkur og fá myndir í sama útliti sem passar við aðrar myndir á ykkar heimasíðu.

—> Fyrir færri en 20 manns kostar töluvert minna að koma í studio.

Meiri fjöldi 20+

⇢ Myndað á ykkar vinnustað!

B: Fyrir miðlungs og stærri fyrirtæki komum við til ykkar.

Setjum upp ljós og bakgrunn. Það er þá minni truflun frá vinnu.

Hafið samband til að fá tilboð með eftirfarandi upplýsingum:

  • Fjöldi starfsmanna?

  • Fjöldi staðsetninga eða fjöldi vakta?

  • Verður myndað á einum degi eða þurfum við að koma oftar?

  • Hafið þið ákveðna skoðun á því hvernig útlit og bakgrunnur á að vera?

  • Í framhaldi getið þið alltaf sent nýja starfsmenn til okkar og haldið sama útliti.

—> Fyrir 20+ manns er það farið að kosta álíka mikið að láta ljósmyndara mæta til ykkar og að senda starfsfólk í studio til okkar.

SVG file icon

Bóka tíma fyrir myndatöku í studio

Þú færð sendan staðfestingarpóst þar sem þú getur “breytt” eða “eytt” bókuninni. (Ath ruslsíu).

SVG file icon
 

Ólíkar þarfir kalla á mismunandi nálgun

 

Starfsmannamyndir

Einfalt, fljótlegt og ódýrt

Starfsmannamyndir → Auðkennismynd, passamynd, prófílmyndir o.fl.

  • Tekur innan við 5 mínútur á haus.

  • Gott fyrir meiri fjölda starfsmanna.

  • “Auðkennismynd”. Manneskjan þekkist auðveldlega.

  • Markmiðið að fá góðar myndir af mörgum einstaklingum á stuttum tíma í sama stíl.

  • Hægt að fá myndir af nýju starfsfólki í sama stíl síðar - staðlað útlit á heimasíðu.

  • Möguleiki á litmyndum og svart hvítum.

  • Unnið á litlu setti með standard lýsingu.

  • Minni myndir, lægri upplausn, minna unnið.

  • “Takmarkað verðmæti”.

  • Ekki sömu gæði og “portrettmynd”.

Portrettmynd

Þegar orðstír, traust og ímynd skiptir máli!

Portrett-myndataka → Ekki bara andlitið heldur líka persónan…!

  • Markmiðið er að fá framúrskarandi góða mynd af einstakling, stjórnendum, listamönnum eða fólki sem er meira áberandi í þjóðlífinu.

  • Listræn og frumleg “táknmynd” fyrir einstaklinga, stjórnir og stjóra.

  • Skapandi listrænt ferli sem tekur lengri tíma.

  • Hugmyndavinna, undirbúningur, samtal, eftirvinnsla, klæðaval.

  • Unnið á stærra setti með betri lýsingu. Krefst meiri búnaður, flottari bakgrunns og meiri eftirvinnslu.

  • Myndir unnar í betri gæðum fyrir fjölmiðla og annað markaðsefni, hærri upplausn.

  • Myndirnar eru meira notaðar og birtast víðar - birtingaleyfi

  • Fleiri mismunandi myndir, ólíkar uppstillingar, leitað að réttu myndinni eða “ímyndinni”.

  • Mæli með að fólk komi vel snyrt og með mismunandi fatnað til að prófa.

  • Hægt að leita til stílista, förðunar og hárgreiðsfólks

SVG file icon

Myndheimar - ljósmyndaþjónusta | (Superstudio) Snorrabraut 56, 105 Reykjavík ⇢ inngangur bakatil | Sími: 519 9870 | Opið 8:00 - 17:00 (fös - 15:00)

Myndir, texti og vefhönnun ©Jón Páll Vilhelmsson